Vinningsnúmer í jólahappdrætti Tilveru

tilverastjorn • 11. desember 2025

Share this article

Útdráttur úr árlega jólahappdrætti Tilveru.

Dregið hefur verið í árlega jólahappdrætti Tilveru. Við viljum óska vinningshöfum til  hamingju með vinningana. – og um leið þakka ykkur öllum kærlega fyrir þátttökuna og stuðninginn við starf Tilveru. Þessi stuðningur skiptir okkur gríðarlega miklu máli og gerir okkur kleift að styðja við fólk í ófrjósemisbaráttunni.


Sérstakar þakkir fá einnig öll þau fyrirtæki sem sýndu okkur stuðning og gáfu vinninga – án ykkar væri þetta happdrætti ekki mögulegt.


Hér fyrir neðan má sjá heildarlista vinninga og vinningsnúmera:

1. Vigt bakki og vigt kerti – 4168
2. Kerti, eldspýtur og jólasveinaspil – 4024
3. Gjafabréf frá Vár í vax, bodylotion sem dregur úr hárvexti – 5014
4. Brjóstapumpa, taubleyjur og brjóstahlífar – 4025
5. Sjampó og Inga Elín bolli – 5018
6. Hrafnhildur silkislæða – 5030
7. Hrafnhildur silkislæða og gjafabréf – 4144
8. Gjafabréf í litun og plokkun hjá Vár, förðunarvörur og naglalakk – 4181
9. Gjafasett frá Z-krem og gjafabréf frá Bakarameistaranum – 4116
10. Gjafasett frá Z-krem og Bakarameistaranum – 5002
11. Gjafasett frá Z-krem og Bakarameistaranum – 4163
12. Gjafasett frá Z-krem og Bakarameistaranum – 4073
13. Gjafabréf frá Apótekaranum og vörur frá Muna – 4133
14. Gjafapakki frá Neostrata – 4113
15. Gjafabréf á námskeið Financial Bootcamp frá Berg Coaching – 4160
16. Gjafabréf fyrir 3 mánaða fjármálaþjónustu frá Berg Coaching – 5026
17. Skynörvunardót, Nóa Síríus súkkulaði og jólasveinaspil – 4169
18. Gjafabréf frá Lifetrack í 6 mánuði – 5003
19. Gjafabréf frá Lifetrack í 6 mánuði og Nóa Síríus súkkulaði – 4093
20. Gjafabréf fyrir 2 í hvalaskoðun frá Eldingu og Nóa Síríus súkkulaði – 4152
21. Aveda pakki og gjafabréf í pizzu frá Shake & Pizza – 4155
22. Sjóböðin Húsavík fyrir 2, gjafabréf frá Shake & Pizza og Nóa Síríus súkkulaði – 4029
23. Gjafabréf fyrir 2 í brunch á Finnson Bistro og fyrir 2 í pílu á Oche – 4114
24. Börnin baka bók, ornament frá Dvalin & Durinn og gjafabréf frá Skopp – 4030
25. Gjafakort í Fotomax og gjafapoki frá Cu2 – 4120
26. Metabolic gjafabréf í 3 mánuði – 4129
27. Metabolic gjafabréf í 3 mánuði – 4176
28. Eldabuskan gjafabréf (10.000 kr.), Oche gjafabréf í pílu fyrir 2 og jólasveinaspil – 4167
29. Eldabuskan gjafabréf (10.000 kr.) og gjafabréf í karókí fyrir allt að 14 manns hjá Oche – 5027
30. Eldabuskan gjafabréf (10.000 kr.), Oche píla fyrir 2 og jólasveinaspil – 4007
31. Gjafabréf fyrir 2 í Krauma og ornament frá Dvalin & Durinn – 5035
32. Gjafabréf frá Eldhestum, reiðtúr fyrir 2 og jólasveinaspil – 4064
33. Gjafabréf á Financial Bootcamp frá Berg Coaching – 4011
34. Gjafabréf á Financial Bootcamp frá Berg Coaching – 4124
35. Gjafabréf frá Fotomax, Nings og Keiluhöllinni (keila fyrir 2) – 4046
36. Prent frá Hjalta Parelius – 5023
37. 500.000 kr. inneign í flísalögn frá Múrtækni – 4084


Við þökkum öllu því frábæra fólki sem gaf vinninga og öllum ykkur sem keyptu miða og styrktu þannig starf Tilveru.


Takk fyrir stuðninginn – hann skiptir miklu máli.

Recent Posts

Eftir tilverastjorn 12. desember 2025
Áskorun um alþjóðleg mörk á fjölda barna á hvern sæðis- eða eggjagjafa: sjónarhorn sjúklinga Í ljósi frétta Rúv 10. og 11. desember um að a.m.k. 197 börn í Evrópu og a.m.k. 4 börn af þeim fædd á Íslandi hafi verið getin með sæði manns með lífhættulegan genagallan [1,2]. Viljum við sem sjúklingasamtök sem starfa fyrir hönd einstaklinga og fjölskyldna sem glíma við ófrjósemi á Íslandi lýsa yfir eindregnum stuðningi við nýlega sameiginlega yfirlýsingu siðaráða Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands og Noregs, frá í apríl, þar sem kallað er eftir alþjóðlegri reglusetningu sem takmarkar fjölda barna sem geta orðið til frá sama sæðis- eða eggjagjafa [3]. Í dag eru engar lagalegar takmarkanir á fjölda barna sem getin eru með gjafafrumum frá hverjum gjafa. Dæmi eru frá erlendum sæðis- og eggjabönkum þar sem á bilinu 25-75 fjölskyldur hafa fengið frá einum og sama gjafanum. Samkvæmt norskum heilbrigðisyfirvöldum eru um 83% einstaklinga sem getnir eru með gjafasæði í Noregi getnir með innfluttu sæði, aðallega frá Danmörku. Í Finnlandi voru 21% allra gjafa frá öðru landi árið 2023. Á Íslandi eru engin lög sem kveða á um hámarksfjölda einstaklinga sem mega þiggja gjafafrumu frá einum og sama gjafa. Íslenskar frjósemisstofnanir hafa þó sett sér eigin viðmið, þar sem sami gjafi má aðeins gefa tveimur fjölskyldum, vegna smæðar samfélagsins. Fjöldi íslendinga leitar þó enn út fyrir landsteinana í frjósemismeðferðir og þá er möguleiki fyrir hendi að kynfrumur frá einum og sama gjafanum séu nýttar af fleiri fjölskyldum en þeim sem þegar hafa þegið kynfrumur frá viðkomandi gjafa hér á landi. Frá sjónarhóli einstaklinga sem getnir eru með gjafafrumum, gjafana sjálfra og þeirra sem þiggja gjafafrumur þá vekur skortur á lögbundnu hámarki ekki eingöngu upp siðferðisleg- eða læknisfræðileg álitamál heldur hafa þessi mál einnig djúpstæð áhrif á sálarlíf þessara einstaklinga. Hámark þarf að vera á hvern eggja- og sæðisgjafa: athugasemdir sjúklinganna Með framförum í erfðarannsóknum á undanförnum árum sem og með opnari umræðu um getnað barna með aðstoð gjafafruma hefur skortur á alþjóðlegu hámarki á fjöldi gjafa hvers frumugjafa leitt í ljós raunveruleg vandamál. Þannig hafa einstaklingar sem getnir eru með gjafafrumum uppgötvað að þeir deila sama gjafa með tugum, jafnvel yfir hundrað, annarra víðsvegar um heiminn, oft án þess að hafa haft nokkra vitneskju. Ljóst er að slík uppgötvun getur haft umtalsverð áhrif á sálarlíf einstaklingsins. Fyrir gjafa getur tilhugsunin um að fjöldi barna munu hugsanlega leita eftir sambandi við viðkomandi á lífsleiðinni verið yfirþyrmandi og íþyngjandi. Fyrir fólk sem þiggur gjafafrumur getur það verið óþægilegt að vita ekki hversu margar aðrar fjölskyldur tengjast sama gjafa og hvort barn þeirra gæti óafvitandi rekist á einstakling getin með kynfrumu frá sama gjafa. Þetta eru ekki fræðileg heldur raunveruleg vandamál sem fjöldi fólks stendur nú þegar frammi fyrir. Þetta er fólk sem við erum í forsvari fyrir. Við krefjumst aðgerða Við ítrekum ákall siðaráða Norðurlanda um: ● Alþjóðlegt lögbundið hámark verði sett á fjölda fjölskyldna sem nýtt geti gjafafrumur frá einum og sama gjafanum óháð landamærum, með hliðsjón af aukinni notkun gjafafruma yfir landamæri; ● Aukið gagnsæi gagnvart bæði gjöfum og fólki sem þiggur gjafafrumur, þar á meðal fulla upplýsingagjöf um landsbundin og alþjóðleg hámörk áður en gjöf eða meðferð fer fram; ● Að sæðis- og eggjabankar setji nú þegar tímabundið hámark þar til slíkt hámark hefur verið bundið í lög, og að frumugjafar eigi rétt á að ákveði sjálfir hámark gjafa sem er lægra en bankinn gefur upp; ● Aðgang að viðeigandi sálfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga sem getnir eru með frumugjöfum, fjölskyldur þeirra sem og gjafa. Markmiðið er ekki að hefta æxlunarfrelsi, heldur að gæta að velferð og vellíðan allra sem koma að getnaði barns með aðstoð gjafafruma. Við teljum að Norðurlöndin og Evrópa í heild sinni verði að sameinast um að bregðast við þessum áskorun. Áskorun okkar Við hvetjum stjórnvöld hér heima sem og innan Evrópu til að hlusta á ákall sjúklinga, fjölskyldna og kynfrumugjafa. Ófrjósemi er læknisfræðilegt ástand sem á skilið læknisfræðilega- og örugga meðferð, en notkun gjafafruma verður jafnframt að vera siðferðileg og traust. Vinnum saman að því að tryggja að réttindi einstaklinga sem getnir eru með frumugjöfum séu virt, að gjafir frá frumugjöfum verði ekki ofnotaðar og að fjölskyldur sem þess þurfa geti nýtt sér tæknifrjóvgun af öryggi og virðingu. Tilvera, samtök um ófrjósemi, hefur ásamt The Nordic Fertility Network unnið að ályktun um alþjóðlega reglugerð um gjafakynfrumur. Auk Tilveru í tengslakerfinu: Fertilitet og tab (DK), Simpukka ry (FI), Ønskebarn (NO) og Riksförbundet ofrivillig barnlöshet (SE). Undirritað: Stjórn Tilveru, María Rut Baldursdóttir, Erla Rut Haraldsdóttir, Sigríður Auðunsdóttir, Anna Þorsteinsdóttir, Jenny Elisabet Eriksson og Alda Magnúsdóttir Jackobsen [1] https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-12-10-197-born-getin-med-saedi-manns-med-lifshaettulegan-genagalla-islensk-born-thar-a-medal-461140 [2] https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-12-10-fjogur-born-a-islandi-getin-med-saedi-kjelds-461263 https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-12-12-reiknar-med-frumvarpi-um-taeknifrjovgun-a-naesta-thingi-461373 [3] https://etene.fi/documents/66861912/0/Nordic+statement+english_final.pdf/94e3628d-017f-ac2d-6e64-499fcb1ce790/Nordic+statement+english_final.pdf?t=1742995397284
Eftir tilverastjorn 10. nóvember 2025
Vitundarvakningarvika 2025
Eftir tilverastjorn 7. nóvember 2025
Aðalfundur 2025
Eftir tilverastjorn 30. október 2025
Vitundarvakningarvika um ófrjósemi 2025
Eftir tilverastjorn 30. október 2025
Jólahappdrætti
Eftir tilverastjorn 28. október 2025
Aðalfundur Tilveru
1. september 2025
Fréttabréf september 2025
31. mars 2025
Fréttabréf mars 2025