|
View unanswered posts | View active topics
|
Page 1 of 1
|
[ 2 posts ] |
|
| Author |
Message |
|
tilvera
|
Post subject: Lífið snýst um meira en bara börn - flutt af gamla spjallinu Posted: Sun May 28, 2006 4:07 pm |
|
 |
| Site Admin |
Joined: Mon May 01, 2006 5:24 pm Posts: 75
|
|
Auðvitað eru margir sem vilja ekki eiga börn og eru ýmsar ástæður til. Sumir vilja það ekki því það tekur of mikinn tíma frá því sjálfu, sumar konur segja að það eyðileggi útlitið / vöxtinn. Tók eftið slíkri skýringu hjá forsetafrúnni okkar, hún sagði beint út í viðtali að hún væri örugglega lélegur uppalandi og þar að auki liti hún líka svona vel út núna vegna þess að hún hefði ekki átt börn. Þetta var hreinskilin skoðun á barneignum og á fullan rétt á sér.
Lífið snýst um meira en bara börn, það er val hvers og eins. Það sem veitir mér ánægju getur virst öðrum sem kvöl. Þannig er þetta bara. Börn eru bónus í lífinu og ber að þakka þegar þau koma, en þau fljúga fljótt úr hreiðrinu og eftir situr maður sjálfur.
Sumir velja barnleysi og aðrir eru þvingaðir í barnleysi og það er getur verið sárt og þá leitar maður allra annarra ráð til að eignast fjölskyldu. Að eiga barn er bæði gefandi og ánægjulegt og getur líka verið nokkuð flókið og erfitt. En það veitir lífinu fyllingu. En það er bara mitt álit. Ég virði þá ákvörðun fólks að vilja ekki eiga barn, það hlýtur þá að hafa góða og gilda ástæðu fyrir þeirri ákvörðun.
Ef maður er sáttur við að vera barnlaus getur maður átt ágætt líf og notið margs, lífið getur boðið uppá svo margt ef maður er opinn fyrir því.
sandur
|
|
| Top |
|
 |
|
Matthildur Jóhannsdóttir
|
Post subject: Glöð myndi ég fórna Posted: Tue Nov 21, 2006 10:17 pm |
|
Joined: Tue Nov 21, 2006 5:22 pm Posts: 6
|
|
Glöð myndi ég fórna háskólamentun minni og því sem ég hef unnið mér inn um dagana ef ég gæti eignast mitt eigið barn. Já ég er ein þeirra sem dró það of lengi.
Alla ævi þegar ég hef verið að læra eitthvað nýtt og skemtilegt. Hvort sem það var að læra á skíði eða ítalska. Hef ég hugsað, það verður gaman að koma þessu áfram til næstu kinnslóðar. Móðir mín var fósturbarn og hún sagði mér að það væri ekki það sama og vera það ekki. Oft sá ég hana hrista höfuðið yfir þeim sem héldu öðru framm. Mig langar samt í fósturbarn því ég er sjálfselsk.
Ég hef kynnst vel fólki sem vill ekki börn og virði þeirra ákvörðun heils hugar, ég er viss um að það var rétt ákvörðun. Þau höfðu ekki það sem þarf.
Ég verð aldrei sátt við að vera barnlaus, og þeir ættingjar sem segja fáðu þau bara lánuð hjá mér, segi ég oftast JÁ TAKK MÁ ÉG FÁ ÞAU LÁNUÐ Á AÐFANGADAGSKVÖLD. Börn sem eru ekki þín eiginn eru skammtímalán. Og skilafrestu er styttri en á vídóspólu. (hí hí)
Börninn fljúa úr hreiðrinu en svo koma barnabörn fyrir flesta.
En hversu góð frænka sem þú hefur verið og hversu oft þú hefur farið með þau á skíði, þá verðum við aldrei nánustu ættingjar þeirra og þau heimsækja þið AUÐVITAÐ ekki eins oft og afa og ömmu þegar þau verða eldri. Samfélagið mun ekki ætlast til þess og við aðlögum okkur samfélaginu.
Ég mun gera allt sem þarf til þess að verða móðir. Já allt. Gjafa egg burða móðir eða býða eftir betri læknavísindum, þó ég verði sextug.
|
|
| Top |
|
 |
|
Page 1 of 1
|
[ 2 posts ] |
|
Who is online |
Users browsing this forum: No registered users and 1 guest |
|
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum You cannot post attachments in this forum
|
|
|