Betri helmingurinn minn er mjög duglegur við að taka inn heilt lyfjabúr af vítamínum sem eiga að hjálpa sundgarpaframleiðslunni; en hann tekur zink, fólinsýru, 100 mg C-vítamín (út af reykingum), borðar kíví á hverjum degi, tekur fljótandi lýsi og omega-3 perlur ... fljótandi lýsið bað hann sjálfur um að ég myndi kaupa fyrir hann, hann var búinn að lýsa því yfir áður að ef ég ætlaðist einhvern tímann til þess að hann myndi drekka það að þá yrði ég einhleyp

hehehe, svo eftir niðurstöðuna úr fyrstu sæðisrannsókninni þá byrjaði hann sjálfviljugur að taka inn fljótandi lýsi á hverjum degi í staðinn fyrir lýsisperlurnar. Á tímabili tókum við bæði inn Sarsaparilla líka, en ég hef reyndar ekki keypt það aftur síðan við kláruðum það fyrir nokkrum mánuðum. Ég hef nefnilega fundið svo misvísandi svör um hvað það gerir varðandi sæðisframleiðslu - sumar síður á netinu segja að það hjálpi gegn ófrjósemi en aðrar segja bara að það hjálpi gegn GETULEYSI ... í mínum huga er það ekki alveg það sama ...
Hann fer ekki í heita potta, hefur ekki tölvuna í kjöltunni, drekkur engan bjór né annað áfengt lengur (hann grætur það mikið þessa dagana og horfir löngunaraugum á jólabjórinn ... ætli það sé ekki í lagi að hann fái einn eða tvo yfir jólin? Það hlýtur bara að vera í lagi!), búinn að minnka reykingarnar niður í nánast ekkert miðað við hvað hann reykti mikið og vonandi getur hann fljótlega hætt alveg.
Í janúar verður honum blessuðum síðan skellt í nálastungur sem hann verður svo vonandi reglulega í fram í apríl þegar smásjármeðferðin okkar hefst. Ég er líka mikið búin að pæla í því hvort ég eigi að kaupa Ask úr grasalækningabúðinni á Laugarveginum; en það á að hjálpa sæðisframleiðislunni mikið skilst mér.
Vá ... við hljómum áreiðanlega eins og við séum hálf undarleg og með þráhyggju á háu stigi ... en æi, við viljum endilega gera allt sem við getum til að auka möguleika okkar á að verða foreldrar. Þetta hefur líka strax borið árangur hjá okkur, því að í seinni sæðisrannsókninni þá hafði frumunum fjölgað um 3 milljónir þótt hreyfileikinn væri reyndar enn jafn slæmur.