Spjallvefur Tilveru
 
It is currently Tue Sep 07, 2010 4:37 pm

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

Hefur þú áhuga á hópstuðningi v/ófrjósemi?
Hef áhuga á hópi fyrir gagnkynhneigðar konur í sambandi 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á hópi fyrir samkynhneigðar konur í sambandi 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á hópi fyrir einhleypar samkynhneigðar konur 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á hópi fyrir einhleypar gagnkynhneigðar konur 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á blönduðum hópi kvenna 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á blönduðum hópi eldri kvenna (40 ára og eldri) 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á hópi fyrir konur sem eru að hætta meðferðum 0%  0%  [ 0 ]
Hef áhuga á hópi fyrir of þungar konur sem fá ekki meðferð 0%  0%  [ 0 ]
Hef ekki áhuga á hópi 0%  0%  [ 0 ]
Annað - hvað? 0%  0%  [ 0 ]
Total votes : 0
Author Message
 Post subject: Hefur þú áhuga á hópúrræði í tengslum við "ófrjósemi"?
PostPosted: Wed Jul 07, 2010 12:54 pm 
Offline

Joined: Sun May 21, 2006 11:30 pm
Posts: 48
Location: Hverfisgötu 76
Ég og annar þerapisti erum að velta fyrir okkur að fara af stað með hópráðgjöf/stuðning fyrir konur sem eru í erfiðum barneignartilraunum. Ég er að velta fyrir mér hvers kyns hópi sé mestur áhugi fyrir og ákvað því að útbúa könnun sem fer hér að ofan.

Tilvera styrkti mig fyrir tveimur árum til að fara á námskeið í Boston hjá Alice Domar, sálfræðingi sem hefur sérhæft sig í svokölluðum Mind/Body hópi fyrir konur sem eru að reyna að eignast börn. Rannsóknir á þesskonar hópum sýna að líðan kvenna batnar til muna, þunglyndis- og kvíðaeinkenni minnka. Konur upplifa sig "sterkari" og geta betur tekist á við þá líðan sem fylgir "ófrjósemi". Ennfremur sýna rannsóknir að 54% þeirra kvenna sem taka þátt í þeim eru orðnar ófrískar innan árs meðan 20% kvenna í samanburðarhópi eru orðnar ófrískar innan árs. Alice mælir með þessu inngripi til að m.a. vega upp á móti ófrjósemi tengdri aldri kvenna þar sem líkurnar á þungun virðast aukast við betri líðan. Um væri að ræða hóp byggðan á þessum fræðum, en í hópum hennar er hist vikulega í 9 vikur í tvo og hálfan tíma í senn. Farið er yfir ýmiskonar fræðslu, heimaverkefni, bjargráð kennd, slökun í hvert skipti, hópstuðningur, o.fl.

Þátttakendur yrðu bundnir trúnaði gagnvart hverri annarri um það sem fram kemur í þessum hópum.

Verðið færi eftir útfærslu á hópunum, þ.e. hvort við förum alveg eftir hugmyndum Alice eða ekki. Ég á þó von á því að slíkt úrræði færi ekki undir 65.000 kr per þátttakanda, en það er algengt verð á hópúrræði þessa dagana - í þeim tilfellum er reyndar um færri skipti að ræða og styttri tíma í hvert skipti, þannig að það á eftir að skoða verðið betur. E.t.v. er líka hægt að sækja um einhverja styrki til að lækka verðið. Ég geri mér grein fyrir því að meðferðir á ART Medica eru dýrar og oft tómt í buddunni eftir meðferð.

Endilega segið mér hvað ykkur finnst um þessa hugmynd. Ef þið viljið ekki svara með pósti, sendið mér þá pælingar ykkar í einkaskilaboðum.

Kærar þakkir!


Top
 Profile  
 
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum
You cannot post attachments in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB © 2000, 2002, 2005, 2007 phpBB Group
Template made by DEVPPL