|
View unanswered posts | View active topics
|
Page 1 of 1
|
[ 8 posts ] |
|
| Author |
Message |
|
Kabbý
|
Post subject: Góð ráð í meðferðum Posted: Thu Apr 08, 2010 11:48 am |
|
Joined: Wed May 03, 2006 7:35 pm Posts: 347 Location: Mosfellsbær
|
Mér datt í hug að búa til þráð þar sem við getum sagt frá ráðum sem hafa reynst okkur vel á meðan meðferðunum stendur. Þá gætum við búið til smá ráðabanka fyrir þá sem eru kannski að byrja í fyrsta sinn í meðferð og eru að lesa hérna til að afla sér fróðleik.
Það er tvennt sem ég man eftir í augnablikinu og tengist bæði undirbúningstímanum þegar maður mætir nánast annan hvorn dag á ART í kjallaraskoðun:
1. Biðin á morgnana (þegar maður tekur númer) getur verið alveg svakalega löng og það munar heilmiklu að hafa eitthvað með sér til að drepa tímann, bók til að lesa, prjóna eða eitthvað slíkt.
2. Við getum allar verið sammála um að lökin sem við fáum í skoðununum eru langt því frá að vera efnismikil, svo það er nær ómögulegt fyrir konu sem er í venjulegum holdum að vefja því alveg utan um sig án þess að einhversstaðar gapi. (ég man eftir umræðu á þessu spjalli fyrir löngu síðan þar sem þeim var líkt við tannþráð  ) Ég heyrði það fyrir mörgum árum (man ekki nákvæmlega hvar) að ein passaði sig alltaf á að mæta annaðhvort í síðri peysu eða pilsi, svo hún þurfti ekki að vera að vesenast með þessi lök. Þetta fannst mér virkilega sniðugt og hef síðan gert þetta og þarf því ekkert að eiga við blessuð lökin.
Ég hlakka til að heyra þau ráð sem hafa reynst ykkur vel. Ég man kannski sjálf eftir fleirum seinna.
Kv. Kabbý
_________________ 3x smásjár, 1 fósturlát, 1xuppsetn. á frystum, 3 hjartsl. 30.okt. 06, 2 hjartsl. 19. feb.07, þríburarnir komu í heiminn 18. mars 07 eftir 28 vikur 1xuppsetn. á frystum, 2x tæknisæðing, 2 hjartsl. 1. júlí 10, tvíburar áætlaðir 4. feb. 11

|
|
| Top |
|
 |
|
Sims
|
Post subject: Posted: Thu Apr 08, 2010 1:41 pm |
|
Joined: Wed May 03, 2006 10:58 am Posts: 502
|
|
gott framtak þetta.. man ekkert einsog er.. nema það að hafa karlana sem oftast með því þeir hafa oft spurningar sem okkur langar í svör við en munum ekki eftir að spyrja.. maður er ekki svo minnugur í þessum meðferðum..
kv Sims
_________________
[
Engla prins 2005 - 4 tækni - 3 glasa - 1 frystir
|
|
| Top |
|
 |
|
Kabbý
|
Post subject: Posted: Thu Apr 29, 2010 1:35 pm |
|
Joined: Wed May 03, 2006 7:35 pm Posts: 347 Location: Mosfellsbær
|
|
Jahérna hér! Lumar engin ykkar á góðum ráðum sem hafa hjálpað ykkur í meðferðum? Þau geta vera í sambandi við allt sem tengist meðferðum, þe. frá fyrstu læknisheimsókn, sprautunum, kjallaraskoðunum, eggheimtum, hvernig eigi að eiga við biðtímann, bara hvað sem ykkur dettur í hug... jafnvel biðinni á milli meðferða.
Ég ætla allavega að bæta aðeins við.
1. Biðin á morgnana (þegar maður tekur númer) getur verið alveg svakalega löng og það munar heilmiklu að hafa eitthvað með sér til að drepa tímann, bók til að lesa, prjóna eða eitthvað slíkt.
2. Við getum allar verið sammála um að lökin sem við fáum í skoðununum eru langt því frá að vera efnismikil, svo það er nær ómögulegt fyrir konu sem er í venjulegum holdum að vefja því alveg utan um sig án þess að einhversstaðar gapi. (ég man eftir umræðu á þessu spjalli fyrir löngu síðan þar sem þeim var líkt við tannþráð ) Ég heyrði það fyrir mörgum árum (man ekki nákvæmlega hvar) að ein passaði sig alltaf á að mæta annaðhvort í síðri peysu eða pilsi, svo hún þurfti ekki að vera að vesenast með þessi lök. Þetta fannst mér virkilega sniðugt og hef síðan gert þetta og þarf því ekkert að eiga við blessuð lökin.
3. Ég reyni alltaf að forðast háræðarnar þegar ég er að sprauta undir húð (Suprefact og örvunarlyfin) því þá hefur komið fyrir að ég fá smá sársaukasting og það blæðir líka meira.
4. Þetta var gott ráð sem ég fékk í sambandi við Gestonsprauturnar (ég man náttúrulega ekki nákvæmlega hvaða ráð ég fékk frá hjúkkunni og hvaða ráð ég fékk annarsstaðar frá) en það er best að sprauta þeim á morgnana eiginlega áður en maður fer framúr. Þá er maður enn heitur undan sænginni. Gott er að nudda vöðvann vel til að hita hann upp áður en sprautað er (líka gott að hita ambúluna í smá stund í lófanum), en það gerir ferlið allt þægilegra.
Þið skulið endilega koma með einhverjar athugasemdir ef mig er eitthvað að misminna (það eru komin rúm þrjú ár frá því að ég var sprautuð síðast með Gestone).
Kv. Kabbý
_________________ 3x smásjár, 1 fósturlát, 1xuppsetn. á frystum, 3 hjartsl. 30.okt. 06, 2 hjartsl. 19. feb.07, þríburarnir komu í heiminn 18. mars 07 eftir 28 vikur 1xuppsetn. á frystum, 2x tæknisæðing, 2 hjartsl. 1. júlí 10, tvíburar áætlaðir 4. feb. 11

|
|
| Top |
|
 |
|
Happy
|
Post subject: Góð ráð - biðtíminn Posted: Mon May 03, 2010 3:06 pm |
|
Joined: Tue May 02, 2006 9:14 am Posts: 159
|
Það sem hefur reynst mér oftast erfiðast í þessum meðferðum er biðtíminn, maður getur orðið svo geðveikur  Finnst gott að vera búin að skipuleggja svolítið hvað ég ætla að gera í biðtímanum. T.d. hafa nokkrar bíómyndir sem mann langar virkilega að horfa á nú eða sjónvarpsþætti. Hafa líka góða bók því tilbreyting er góð. Fara í heimsóknir (og þá ekki til fólks sem er orkusugur heldur bara þeirra sem manni líður virkilega vel hjá - skiptir þá engu hvort fólkið veit hvað maður er að ganga í gegnum eða ekki). Auðvitað getur maður svo líka ákveðið að hreinsa til í bókhaldinu eða eitthvað því um líkt, en um að gera að hafa eitthvað skemmtilegt, sem maður er spenntur að gera. Einnig hef ég alltaf skipulagt eitthvað skemmtilegt til að gera einhvern tíma eftir blóðprufuna (utanlandsferð, sumarbústaðaferð, matarboð eða bara eitthvað sem maður getur hlakkað til að gera ef niðurstaðan er ekki sú sem maður óskaði).
Einnig finnst mér líka sniðugt að taka sér frí áður en maður fer í uppsetninguna, sérstaklega ef maður er í starfi sem er stressandi.
Vona að þetta komi einhverjum að notum.
Ein geðveik í biðinni.
Happy
_________________ Byrjað að reyna 2002 4x glasa. Einu sinni jákvætt en hélst ekki 2x upps. á frystum - neikvætt. + 1 tilraun þar sem fósturvísarnir dóu 1x glasa - neikvætt Allra síðasta tilraun - Uppsetning 30. apríl 2010 - jákvætt 14. maí - hjartsláttur 28. maí
|
|
| Top |
|
 |
|
lilla66
|
Post subject: Posted: Thu May 06, 2010 11:46 am |
|
Joined: Mon May 01, 2006 9:22 pm Posts: 192 Location: Reykjavík
|
|
Ég stakk alltaf gestone hylkjunum í brjóstahaldarann í svona klukkutíma áður en ég sprautaði...
Þá var það vel volgt.
_________________ 3x glasa - 6x uppsetning á frystum. Já í 9. meðferð, kraftaverkadrengur væntanlegur 30. júlí!
|
|
| Top |
|
 |
|
Dulla
|
Post subject: Posted: Fri May 14, 2010 8:05 pm |
|
Joined: Wed Apr 09, 2008 11:39 pm Posts: 63 Location: Kópavogur
|
Ég er svo sammála Kabbý með biðina. Ég reyni að mæta alltaf með handavinnu með mér, þá er tíminn svo miklu fljótari að líða.
Aftur sammála Kabbý, síðustu tvær meðferðir mætti ég eingöngu í skokkum eða kjólum og sleppti blessuðum lökunum (ef lök skyldi kalla, frekar þvottastykki!)
Mér finnst nauðsynlegt að vera búin að leggja á minnið eða punkta hjá mér allt sem brennur á mér þegar ég mæti í skoðanirnar og læt allt flakka sem er að velkjast um í mér meðan ég hef tímann með lækninum.
Bjartsýni, gleði og afslöppun í biðinni. Var síðast búin að redda mér fullt af bókum, fylla flakkarann af þáttum sem ég átti eftir að sjá. Þar síðasta eggheimta gekk frekar illa og ég var algerlega rúmföst að drepast í 5 daga eftir hana svo ég var með flakkara sem hægt er að tengja við tölvu svo ég gæti horft í henni, en þurfti þess svo reyndar ekki því það gekk rosa vel siðast. Reyni að fara út í göngutúra eins og ég get og gera skemmtilega hluti
Muna að þó við eigum slæmar eggheimtur að baki, þarf það ekki að þýða að næsta verði slæm. Mæta afslappaðar!
Man ekki meira í bili....
_________________ Höfum reynt síðan 2005
Pergó 2007
4x tækni 2008 og 2009
Glasa ágúst 2009-neikvætt, ekkert í frysti
Split meðferð mars 2010-jákvætt 6.apríl
|
|
| Top |
|
 |
|
Happy
|
Post subject: Re: Góð ráð í meðferðum Posted: Sun May 16, 2010 9:19 pm |
|
Joined: Tue May 02, 2006 9:14 am Posts: 159
|
Varðandi fyrstu einkennin þá hefur maður oft heyrt þessi hefðbundnu um brjóstaspennuna, stingi í leginu, túrverkina og ógleðina. En ég datt um einhvern lista núna í biðtímanum um 10 fyrstu einkenni þess að maður væri óléttur (finn hann því miður ekki aftur  ) en þar á meðal var talað um að geirvörturnar verði brúnar - þetta er eitthvað sem ég upplifði, það komu svona litlir brúnir blettir á geirvörturnar og svo annað var að hitastig líkamans hækkar oft. Þetta var ástæðan fyrir því að ég gaf ekki upp alla von, en ég byrjaði að mæla mig nokkrum dögum eftir uppsetningu og mældi mig á hverjum degi og hitinn var alltaf á bilinu 37,5°-38,0° (eðlilegur líkamshiti hjá mér er ca 36,5-36,6°). Ég var samt ekki með neina beinverki eða neitt slíkt sem fylgir alltaf hjá mér þó svo að ég sé bara með 37,5° Ég var samt ekki viss um hvort þetta væri bara tilkomið vegna hormónanna sem maður er að dæla í sig eða af því að fóstrið var búið að festa sig. Þetta er sem sagt kannski eitthvað sem vert væri fyrir ykkur að skoða - þ.e. grandskoða geirvörturnar fyrir uppsetningu og mæla hitann fyrir og eftir uppsetningu Maður er svo geðveikur í að leita eftir einhverjum einkennum og mér fannst þetta öðruvísi en allt annað sem ég hef verið að fylgjast með. En kannski er þetta bara enn eitt til að verða bilaður yfir Kv. Happy
_________________ Byrjað að reyna 2002 4x glasa. Einu sinni jákvætt en hélst ekki 2x upps. á frystum - neikvætt. + 1 tilraun þar sem fósturvísarnir dóu 1x glasa - neikvætt Allra síðasta tilraun - Uppsetning 30. apríl 2010 - jákvætt 14. maí - hjartsláttur 28. maí
|
|
| Top |
|
 |
|
zola
|
Post subject: Re: Góð ráð í meðferðum Posted: Sat Jun 12, 2010 3:11 pm |
|
Joined: Wed Feb 20, 2008 7:20 pm Posts: 196
|
mmmmmm taka inn hörfræolíu, stútfull af omega 3 fitusýrum sem er nauðsynleg við þroska fósturs. Sérstaklega fyrir þær sem borða lítinn fisk. 
_________________ Pakkinn búinn hjá ART
Óvænt heimatilbúið já í des. 2008
Eftir laaanga bið kom fullkominn pjakkur í heiminn í ágúst 2009
|
|
| Top |
|
 |
|
Page 1 of 1
|
[ 8 posts ] |
|
Who is online |
Users browsing this forum: No registered users and 1 guest |
|
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum You cannot post attachments in this forum
|
|
|