Hæ hæ,
ég er ný hér, rakst á þennan spjallþráð eftir langa leit og er ekkert smá fegin.
Hef ekki fundið neitt hingað til sem segir manni jafn mikið um Art Medica meðferðir eða hvað er hægt að gera fyrir fólk sem gengur illa að eignast börn.
Sagan okkar er í stuttu máli sú að við erum búin að missa fóstur 5 sinnum á árunum 2006 til 2008.
Eftir 3 skipti fórum við í rannsóknir hjá lsh og fengum þar að vita að þetta hefði verið litningagalli sem olli því fósturláti, en þar sem það væri ólíklegt að það hefði verið það sama í öll 2 skiptin væri þetta ekkert sem við þyrftum endilega að þurfa að þola aftur. Jafnframt var mér sagt að ef ég yrði ófrísk aftur ætti ég að hafa samband beint við kvennadeildina og koma þar í stöðugt eftirlit þar sem ég væri metin sem kona með áhættumeðgöngu því ég hefði misst svo oft.
Þegar þarna var komið við sögu vorum við alveg búin á því andlega og þetta reyndi mjög á sambandið okkar svo við ákváðum að taka okkur pásu frá barneignum í heilt ár og það var mjög gott og við náðum að hlaða batteríin vel á þessu ári.
Ári seinna hætti ég svo á pillunni og varð ólétt um leið aftur hringdi á lsh eins og mér hafði verið sagt áður en ég fékk enga þjónustu þar var bara bent á að fara til míns kvennsjúkdómalæknis, ég missti fóstrið eftir mjög stuttan tíma og fór á lsh út af því en ekkert var gert annað en mér var klappað á bakið og sagt að koma vonandi fljótt aftur og þá gengi allt vel. Það sama gerðist aftur núna í des 2008 og aftur var mér bara sagt að tala við minn læknir eða ljósmóðir. Vonbrigðin voru auðvitað mikil og ég er rosalega sár út í þá meðferð sem maður fær hjá lsh.
Á þessum tíma hef ég hef verið hjá fleiri en einum kvennsjúkdómalækni og engin þeirra hefur mælt með að ég færi til Art Medica eftir hjálp. Þegar ég spurði kom alltaf það svar að þau gætu ekkert hjálpað mér því ég gæti alveg orðið ófrísk. Ég trúði þessu en núna í desember eftir að ég missti ákváðum við að nú væri nóg komið og ég pantaði tíma hjá Guðmundi í Art Medica sem ég fékk núna í lok janúar
Ég fór líka að spyrjast fyrir og fann loksins rosa góðann læknir sem ætlar að fylgja mér eftir og kalla eftir gögnunum um mig frá lsh sem og fylgja mér eftir hjá Art Medica og ég er svo fegin. Ég fór til hans rétt eftir að ég missti og ég sagði honum mína sögu og þá sagði hann að það væri einmitt mjög gott að ég væri búni að panta tíma hjá Art Medica því ég þyrfti líklega á gjafaeggi að halda þar sem eggin mín væru alltaf gölluð (litningagallar) en mjög líklegt væri að ég gæti alveg gengið með barn. Þetta eru sko ekkert smá góðar fréttir og það sem meira er þá er ég komin með eggjagjafa líka sem vonandi passar við mig
Þannig nú erum við að hefja okkar ferð til Art Medica og finnst frábært að hafa þennan vef til að ræða svona mál við fólk sem er í svipuðum sporum og við.
Ég veit ég er blaut á bakvið eyrun miðað við marga hér og á kannski eftir að verða fyrir fleiri áföllum enda bara á byrjunarreit á nýjum stað. En ég er bara svo glöð að vera loksins komin með einhverja niðurstöðu um hvað þarf að gera í stað þess að halda áfram að reyna og vonast til að allt gangi sem það gerir svo ekki. 5 sinnum er allt of mikið.....