|
|
|
Almennur félagsfundur 2 apríl 2009 |
|
Fimmtudaginn 2. apríl, kl. 20.00 verður almennur félagsfundur í sal Park Inn Ármúla 9. Þetta er fundur fyrir félagsmenn Tilveru og er hugsaður til þess að félagsmenn geti rætt það sem þeim liggur á hjarta við stjórnarmenn og hvern annan. Þetta verður örugglega fræðandi og skemmtilegar umræður, eins og alltaf þegar við hittumst, því fátt er betra þegar baráttan við ófrjósemina er í algleymingi, að hitta aðra sem skilja þau spor sem maður er í. Við hvetjum því alla félagsmenn að mæta, því fleiri því fjölbreyttari umræður. Það verður hægt að skrá sig í Tilveru á staðnum, fyrir þá sem vilja ganga í félagið. Með kveðju og von um að sjá sem flesta Stjórn Tilveru.
|
|

|
|
|