Skattaskýrslan Það líður að skilum skattskýrslunnar og vert er að hafa í huga að hægt er að sækja um svokallaða ívilnun vegna óvenju mikils læknis- og lyfjakostnaðs. Fjöldi fólks sem farið hefur í frjósemismeðferðir hefur fengið tekjuskattstofninn lækkaðann sökum kostnaðar við tæknifrjóvganir (tæknisæðingar, glasa- og smásjárfrjóvganir) og það er um að gera að nýta sér þennan rétt því meðferðirnar eru kostnaðarsamar.
Hægt er að fá einhvern hluta meðferðarkostnaðarins endurgreiddan hjá verkalýðsfélögunum því mörg þeirra styrkja félagsmenn vegna mikils lækniskostnaðar. Þennan styrk þarf að taka fram á skattaskýrslunni, ekki gleyma því.
Meðfylgjandi eru frekari upplýsingar um þessa ívilnun og annað tengt.
Þegar farið er á Upplýsingavef RSK er stika vinstra megin og þar er liður sem heitir Lækkun og frádrættir. Undir þeim lið er hægt að finna lesningu um Lækkun (ívilnun)
"Umsókn um lækkun Hjá skattstjórum skulu liggja frammi umsóknareyðublöð fyrir umsókn um ívilnun samkvæmt 65. gr. Á þeim skal koma greinilega fram hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn. Maður sem sækir um ívilnun þarf að leggja fram fullnægjandi upplýsingar á þar til gerðum eyðublöðum eða á annan hátt. Ákvörðun skattstjóra um ívilnun samkvæmt umsókn með skattframtali er kæranleg til skattstjóra. Kæruúrskurði skattstjóra varðandi ívilnun má áfrýja til ríkisskattstjóra. Skattstjóri skal taka umsóknir um lækkun skv. 65. gr. til umfjöllunar þótt þær berist eftir lok kærufrests.
Lækkun skv. 1. tl. Ellihrörleiki, veikindi, slys eða mannslát Skilyrði fyrir lækkun samkvæmt þessum tölulið eru að ellihrörleiki, veikindi, slys eða mannslát hafi haft í för með sér skert gjaldþol. Með skertu gjaldþoli er átt við að greiðslugeta manns sé skert vegna þess að hann hafi orðið fyrir verulegum kostnaði umfram bætur og styrki sem hann hefur fengið vegna framangreindra tilvika. Með kostnaði vegna ellihrörleika, veikinda eða slysa í þessu sambandi er átt við dvalarkostnað á stofnunum, lyfja- og lækniskostnað, kostnað vegna ferða, ýmiss konar sérútbúnaðar vegna fötlunar o.s.frv. Sýnt skal fram á að um óhjákvæmilegan kostnað sé að ræða og fyrir þurfa liggja gögn til staðfestingar á honum. Þó skal skattstjóri veita ívilnun án umsóknar fái gjaldþegn dvalarheimilisuppbót frá Tryggingastofnun ríkisins. Með kostnaði vegna andláts er átt við útfararkostnað ef hinn látni hefur látið eftir sig maka eða skylduómaga. Með útfararkostnaði er átt við venjulegan kostnað vegna útfarar."
Til að finna fylgiskjalið sem þarf að fylla út með skattaskýrslunni er farið inná upplýsingavef RSK, smellt á Eyðublöð í stikunni vinstra megin, tengillinn Fylgiskjöl með framtali einstaklinga fundinn og þar er skjal sem er merkt RSK 3.05 Umsókn A skv. 65. gr og/eða 79. gr.
|