Föstudagur 03 september 2010
Enskt orðasafn
Eftirfarandi orða- og skammstafanasafn er til þess ætlað að auðvelda lesendum skilning á helstu hugtökum sem notuð eru í ensku um málefni sem snerta frjósemi. Á listanum eru bæði algengar styttingar á orðum sem oft eru notaðar á spjallþráðum, sem og þýðingar á hugtökum. Njótið vel.

A-C

 

2 week wait - Biðin frá egglosi/uppsetningu þar til að tíðahringnum lýkur og konan veit hvort hún er ófrísk eða ekki
2ww - sjá 2 week wait
47XXY – sjá Klinefelter’s Syndrome

ACA – sjá Anti-cardiolipin Antibodies
Anti-cardiolipin Antibodies – Cardiolípíð er ein tegund af fosfórlípíðum og því er hér verið að tala um mótefnapróf gegn Cardiolípíðum. Sjá nánar Anti-Phospholid Antibodies
Adoption – ættleiðing
AF – sjá Aunt Flo
AFP – sjá Alpha Fetal Protein Test
AH, AZH – sjá Assisted Hatching
AHI – sjá At home Insemination
AIH – sjá Artificial Insemination from Husband
Alpha Fetal Protein Test – blóðprufa sem sker úr um hvort fóstur er haldið Downs Syndrome o.fl. sjúkdómum
Amenorrhoea - það ástand þegar konan hefur ekki blæðingar (tíðateppa)
Anovulation
– það ástand þegar kona hefur ekki egglos
Anti-Phospholipid Antibodies – Próf sem ætlað er að meta hvort og þá hve mikið mótefni er til staðar í líkama sjúklings gegn efnasamböndum í líkamanum sem bera samheitið fosfórlípíð, en alls eru þessi efnasambönd 3 talsins. Mótefnin sem til eru gegn þeim eru hins vegar 9 talsins. Ef kona er með mikið af slíkum mótefnum í líkamanum, getur það haft í för með sér aukna áhættu á fósturláti þar sem mótefnið hefur þá slæm áhrif á festingu fósturvísisins, truflað blóðflæði milli fósturs og móður og einnig valdið vansköpun fósturs. Þetta próf er stundum notað erlendis fyrir konur sem hafa gengið í gegnum endurtekin fósturlát og glasafrjóvganir. Ef prófið sýnir að mótefnið er óeðlilega hátt þarf konan að undirgangast meðferð til að vinna á móti því.
Anti-sperm Antibody – Próf sem mælir mótefni í sæði. Ef mikið mótefni, sem bundið er við yfirborð sæðisfrumunnar, er til staðar, getur það truflað samruna sæðis og eggs, og þar með minnkað möguleika parsins á frjóvgun. Í glasafrjóvgun er sæðið “hreinsað” áður en frjóvgunin fer fram og það getur minnkað mótefnamagnið. Konur sem hafa mótefni gegn sæðisfrumum mannsins síns geta líka lent í vandamálum. Ef mikið mótefni gegn sæðinu er í legslímu konunnar þá getur það haft slæm áhrif á getu sæðisfrumnanna til að synda alla leið upp í eggjaleiðara konunnar og frjóvga eggið.
AO – sjá Anovulation
APA – sjá Anti-Phospholipid Antibodies
ART – sjá Assisted Reproductive Technology
Artificial Insemination from Husband – tæknisæðing sem fer fram með sæði eiginmanns
ASA – sjá Anti-sperm Antibody
Aspermatism – engar sæðisfrumur í sæði
Aspermatogenesis – sáðfrumnabrestur
Aspermia - Þegar maður framleiðir ekkert sæði.
Asthenospermia - Sæðispróf sýnir að hreyfanleiki sæðisins er óeðlilega lítill, eða minna en 50%.
Asthenozoospermia - sjá Asthenospermia

ASRM - American Society of Reproductive Medicine – ameríska frjósemislæknafélagið
Assisted Hatching – þegar ysta lag eggsins er rofið til að auðvelda festingu fósturvísa ef frjóvgun verður
Assisted Reproductive Technology – Læknavísindi sem miða að því að hjálpa ófrjóum pörum að eignast börn
At home Insemination – þegar sæði er komið fyrir í konunni heima við
Aunt Flo – flúryrðið Rósa frænka í merkingunni blæðingar
Azoospermia - Þegar sæði karlmanns inniheldur engar sæðisfrumur

B2 – Baby Two; barn númer 2
BA – sjá Baby Aspirin
Baby Aspirin – Barnamagnýl, blóðþynnandi lyf sem stundum er notað til að auka blóðflæði í leginu og þar með möguleika á festingu fósturvísa.
Baby dancing – hafa samfarir í þeim tilgangi að geta barn
Baby-making Sex – samfarir í þeim tilgangi að geta barn
Basal body temperature – grunnlíkamshiti sem miðað er við þegar verið er að mæla hitann til að spá fyrir um egglos
BBT – sjá basal body temperature
BCP – birth control pill – Pillan
BD – sjá baby dancing
Beta – blóðprufa þar sem athugað er hvort konan er ófrísk eða ekki
BG – sjá Blood Glucose
Blastocyst – kímblaðra (stig í þroska fósturvísa)
Blood Glucose – blóðsykur
Bloodwork – blóðprufa
BMS - sjá Baby-making Sex
Breast Self-Exam – sjálfsskoðun brjósta
BSE – sjá Breast Self-Exam
BW, b/w sjá Bloodwork

C# sjá Cycle Number
CAH - sjá Congenital Adrenal Hyperplasia
CASA – sjá Computer-assisted Semen Analysis
CB – Cycle Buddy; einhver sem er á sama stað í tíðahringnum og maður sjálfur
CBAVD - sjá Congenital Bilateral Absence of the Vas Deferens
CCCT, CCT – sjá Clomiphene Citrate Challenge Test
Clomiphene Citrate Challenge Test – próf sem er framkvæmt á konum sums staðar erlendis til að athuga hvort eggjastokkar þeirra starfa eðlilega. Það fer þannig fram að á degi 3 í tíðahringnum er magn estradiols og FSH mælt. Konan tekur svo 100 mg af Pergotime (Clomiphene Citrate) á degi 5-9. Á degi 10 er svo FSH og estradiol mælt aftur. Ef magn FSH reynist mjög hátt er það vísbending um að eggjastokkarnir starfi ekki eins og skyldi.
CD – cycle day: dagur tíðahrings
Certified Nurse Midwife – ljósmóðir
Cervical fluid – útferð úr leggöngum
Cervical mucus – slím í leggöngum og leghálsi
Cervical Position – staða leghálsins. Í kringum egglosið opnast leghálsinn og færist neðar en venjulega, sem eykur líkur á getnaði
Cervix – legháls
CF – sjá Cervical Fluid
Charting – að mæla hitann á hverjum morgni til að finna út hvenær egglos verður
Chromosome – litningur
CL – sjá corpus luteum
Clomid – pergotime, lyf til að örva egglos kvenna með óreglulegan tíðahring
Clomiphen citrate – pergotime
CM – sjá Cervical Mucus
CMV – sjá Cytomegalovirus
CNM – sjá Certified Nurse Midwife
COH – sjá controlled ovarian hyperstimulation
Computer-assisted Semen Analysis – sæðissýni sem rannsakað er með aðstoð tölvutækninnar
Conceive – geta barn
Conception – getnaður
Congenital Adrenal Hyperplasia – meðfæddur vefjaauki (offjölgun frumna) í nýrnahettum
Congenital Bilateral Absence of the Vas Deferens – þegar karlmaður fæðist án sáðrása
Contraceptive – getnaðarvörn
Controlled ovarian hyperstimulation – oförvun eggjastokka sem stjórnað er í glasafrjóvgunarmeðferð eða tæknisæðingarmeðferð
corpus luteum – gulbú, sjá einnig luteal phase
COW – Curse of Womanhood (blæðingar)
CP – sjá Cervical Position
Cycle Number – tíðahringur nr.
Cytomegalovirus – vírus úr herpesfjölskyldunni sem ræðst m.a. á þekjufrumur


D-E


Days Post 3-Day Transfer – fjöldi daga eftir uppsetningu, sem framkvæmd er á þriðja degi eftir eggheimtu
Days post egg transfer – sá dagafjöldi sem liðinn er síðan fósturfærsla (uppsetning) var framkvæmd (í glasafrjóvgun)
Days Post Ovulation
– fjöldi daga eftir egglos
Days Post Retrieval – fjöldi daga eftir eggheimtu
Days Post Transfer - fjöldi daga eftir uppsetningu (fósturvísa)
DD – dear daughter
DE – sjá Donor Eggs
DES – Lyf sem notað var í Bandaríkjunum fyrir nokkrum áratugum og hafði þau áhrif á börn þeirra kvenna sem það tók að þau urðu ófrjó síðar meir.
DES - sjá Diethylstilbestrol (a synthetic estrogen)
DH – dear husband; eiginmaður, kærasti
DHEAS – Dihydroepiandrosterone Sulfate, þ.e. andrógenskyldur steri, sem er hormón sem nýrnahetturnar seyta og finnst í þvagi.
DI – sjá donor insemination
Diethylstilbestrol – stilböstról, estrógenskylt lyf sem hefur verið notað fyrir konur í frjósemismeðferðum erlendis
DIPI – sjá Direct Intra-peritoneal Insemination
Direct Intra-peritoneal Insemination – þegar tæknifrjóvgun er framkvæmd þannig að sæðinu er komið inn fyrir lífhimnu eggsins í þeirri von að úr verði frjóvgun
Direct Oocyte-Sperm Transfer – frjóvgunaraðferð þar sem eggfrumu(m) og sæði er komið fyrir í eggjaleiðara eða legi konu.
DIUI – sjá donor intrauterine insemination
Donor Eggs – gjafaegg sem notuð eru í glasafrjóvgun
Donor insemination - tæknifrjóvgun þar sem notað er gjafasæði
Donor intrauterine insemination – tæknisæðing með gjafasæði
DOST – sjá Direct Oocyte-Sperm Transfer
DP3DT – sjá Days Post 3-Day Transfer
DPET – sjá Days past egg transfer
DPO – sjá Days Post Ovulation
DPR – sjá Days Post Retrieval
DPT – sjá Days Post Transfer
DW – Dear Wife
Dx – Diagnosis, þ.e. greining
Dysovulation – það ástand að konan hefur ekki egglos

E2 – sjá estradiol
EB, EMB – sjá Endometrial Biopsy
EDD – sjá Estimated Due Date
Egg retrieval – eggheimta, þegar egg eru tekin eftir örvun eggjastokka í glasafrjóvgun
Egg transfer – uppsetning fósturvísa í glasafrjóvgun
Egg white cervical mucus – glær/hvítt teygjanlegt slím sem (oft) er framleitt í leghálsi kvenna í kringum egglos og auðveldar sáðfrumunum sundið til muna
Ejaculation - sáðlát
Embryo – fósturvísir
Embryo Toxicity Assay – eiturefnapróf á fósturvísum
Embryo Transfer – uppsetning fósturvísa
Endo – algeng stytting á endometriosis
endometrial biopsy – vefsýni eða vefsýnistaka úr legslímhúð konu
endometrial hyperplasia – offjölgun frumna í legslímhúð konu
Endometrioma - legslímuvilluæxli
Endometriosis - legslímuvilla, legslímuflakk
Endometrium – legslímhúð, legslíma
EPO – sjá Evening Primrose Oil
ER – sjá egg retrieval
Estimated Due Date – áætlaður fæðingardagur
Estradiol – ein tegund estrógens sem er mælt til að sjá hvernig eggbú konunnar þroskast í fyrri hluta tíðahringsins
ET – sjá egg transfer
ET – sjá Embryo Transfer
ETA – sjá Embryo Toxicity Assay
Evening Primerose Oil – kvöldvorrósarolía sem margir telja að hafi góð áhrif á frjósemi kvenna
EW, EWCM – sjá egg white cervical mucus


F-G

Fallopian Tube Reanastomosis – aðgerð þar sem reynt er að opna á ný fyrir lokaða eggjaleiðara
Fallopian tubes – eggjaleiðarar
Fasting Blood Glucose – blóðsykur á fastandi maga
FBG – sjá Fasting Blood Glucose
Fertility – frjósemi
Fertilization – frjóvgun
FET – sjá frozen embryo transfer
Fetal Heart Rate – mæling á hjartslætti fósturs
Fetus - fóstur
FHR – sjá Fetal Heart Rate
Fibroid – sléttvöðvahnútar (bandvefshnútar) í legi
Fibroid tumor – sléttvöðvahnútar (bandvefshnútar) (oftast í legi)
Follicle – eggbú
Follicular phase – fyrri hluti tíðahringsins, frá fyrsta degi blæðinga fram að egglosi. Sjá einnig luteal phase
Follicular Stimulating Hormone – FSH, hormón sem heiladingullinn seytir og örvar eggjastokka til að þroska egg
Follistim – lyf sem gefið er til að örva eggjastokkana til að losa egg (ekki notað hérlendis)
FP – sjá Follicular Phase
Frozen embryo transfer – uppsetning frystra fósturvísa
FSH – sjá follicular stimulating hormone
Fundus – botn, legbotn

Galactorrhea - það ástand þegar konan framleiðir of mikið af mjólkurhormóni (prolactini). Það getur truflað tíðahringinn og frjósemi konunnar. Hægt er að fá lyf við offramleiðslu á prolactini.
Gamete Intra-Fallopian Transfer – Frjóvgunaraðferð þar sem eggjum og sæði er blandað saman utan líkamans og sett strax inn í eggjaleiðarana þar sem frjóvgun fer fram ef allt fer að óskum.
GD – sjá Gestational Diabetes
Gestational Diabetes – meðgöngusykursýki
Gestone – lyf sem inniheldur prógesteron, gefið konum eftir uppsetningu fósturvísa í glasafrjóvgunarmeðferð til að þær geti haldið fóstrinu þar sem meðferðin gerir það að verkum að líkaminn framleiðir ekki nóg prógesterón.
GIFT – sjá Gamete Intra-Fallopian Transfer
Glucophage – lyf gefið konum sem eru með skert sykurjafnvægi /sykurþol til að auka frjósemina
Glucose Tolerance Test – sykurpróf, oft notað til að prófa konur fyrir meðgöngusykursýki
GnRH – sjá Gonadotropin Releasing Hormone
Gonadotropin Releasing Hormone – hormón sem undirstúka heilans seytir í lok hvers tíðahrings og kemur af stað blæðingum
Gonal F – Lyf gefið í frjósemismeðferð. Lyfið er sykurprótein framleitt með samrunaerfðatækni. Hefur örvandi áhrif á vöxt og þroska eggbúa hjá konum.
GTT – sjá Glucose Tolerance Test
Gynecologist – kvensjúkdómalæknir


H-I

HCG – sjá Human chorionic gonatropin
HCP – Health Care Practitioner, heilbrigðisstarfsmaður
HPT – home pregnancy test - þungunarpróf til heimanota
HRT – Hormone Replacement Therapy
HSC – sjá Hysteroscopy
HSG – sjá hysterosalpingogram
Human chorionic gonatropin – hormón sem fósturvísir gefur frá sér þegar hann grefur sig niður í legið, oftast nefnt þungunarhormón
hypogonadism – sjúklegt ástand þar sem eistu eða eggjastokkar gefa frá sér minni hormón en eðlilegt er
Hyperprolactinemia - sjá galactorrhea
Hypothalamus
– undirstúka heilans, sem seytir m.a. GnRH, hormóni sem kemur af stað blæðingum í lok tíðahrings kvenna
hysterosalpingogram – röntgenmyndataka af legi og legpípum með skuggaefni
Hysteroscopy – legspeglun

ICI – sjá Intra-cervical Insemination
ICSH – sjá interstital cell stimulating hormone
ICSI - sjá Intracytoplasmic Sperm Injection
IF – Infertility, ófrjósemi
IGTT – sjá Insulin and Glucose Tolerance Test
Implantation - festing fósturvísa við legslímhúð konunnar
In vitro fertilization - glasafrjóvgun
Insulin and Glucose Tolerance Test – sykursýkispróf
Interstitial cell stimulating hormone – sjá Luteinizing hormone
Intracytoplasmic Sperm Injection – Smásjárfrjóvgun, glasafrjóvgun þar sem sæðisfrumu er sprautað beint inn í eggfrumuna, árangursríkasta leiðin til frjóvgunar fyrir pör þar sem frjósemi mannsins er skert
Intravenous Immunoglobulin – Ónæmisglóbúlín sem gefið er í æð (oft sem hluti af frjósemismeðferð erlendis þegar kona er með óeðlilega mikið af mótefnum sem trufla frjóvgun, festingu fósturvísis eða aðra hluta ferlisins).
Intra Uterine Device
– getnaðarvarnir sem komið er fyrir í legi / leghálsi konunnar
Intra-cervical Insemination – tæknisæðing þar sem sæðinu er komið fyrir við leghálsinn
Intra Uterine Fetal Demise
– Fósturlát
Intra Uterine Insemination
– tæknisæðing
Intra-tubal Insemination – tæknisæðing þar sem sæðinu er komið fyrir í eggjaleiðurum konunnar
ITI – sjá Intra-tubal Insemination
IUD – sjá Intra Uterine Device
IUI – sjá Intra Uterine Insemination
IV – (lyf gefin í æð með) æðalegg
IVF – sjá in vitro fertilization
IVIg – sjá Intravenous Immunoglobulin


J-M

Klinefelter’s syndrome – litningagalli í karlmönnum sem hafa þá einn auka X kynlitning (XXY í stað XY). Flestir karlmenn með Klinefelter’s syndrome framleiða engar sæðisfrumur og allir eiga við frjósemisvanda að stríða.

LAP – sjá Laparoscopy
Laparoscopy – kviðarholsspeglun
Last menstrual period – síðustu blæðingar, (fyrsti dagur)
Leukocyte Immunization Therapy
– ónæmismeðferð
leucospermia - þegar óeðlilega mikið af hvítum blóðkornum er í sæði karlmanns. Þegar svo háttar til bendir það til sýkingar.
LH – sjá luteinizing hormone
LIT – sjá Leukocyte Immunization Therapy
LMP – sjá Last Menstrual Period
LO – Love Olympics (kynlíf)
Low Sperm Count – fáar sæðisfrumur í sæði
LP
– sjá Luteal Phase
LPD – sjá luteal phase defect
LSP – sjá Low Sperm Count
LUF, LUFS – sjá lutenized unruptured follicle syndrome
Luteal phase – seinni hluti tíðahringsins, frá egglosi að blæðingum, sjá einnig follicular phase
Luteal phase defect – sjúklegt ástand þar sem tíminn sem líður frá egglosi að blæðingum er alltaf svo stuttur að fósturvísir nær ekki að festa sig í leginu áður en honum er skolað út með blæðingum. Ef þessi tími er 10-11 dagar er líklegt að þetta vandamál sé til staðar
Luteinizing hormone – gulbússtýrikveikja, (gulbússtýrihormón), sem kemur af stað egglosi um miðjan tíðahringinn, þegar estrógenmagn líkamans nær hámarki
Lutenized unruptured follicle syndrome – sjaldgæfur sjúkdómur sem veldur því að tilbúin, fullörvuð eggbú rofna ekki og skila frá sér egginu og því verður ekki egglos

M/c, misc eða MC – sjá miscarriage
M/s – morning sickness; morgunógleði
MESA – sjá Microsurgical Epididymal Sperm Aspiration
Metformin – lyf sem notað er til að meðhöndla konur með blöðrur á eggjastokkum (ekki notað hérlendis)
MF – sjá metformin
Microsurgical Epididymal Sperm Aspiration – ástunga á eistnalyppu til að ná í sæði hjá karlmönnum sem eru t.d. með stíflaðar sáðrásir, sem hluti af smásjár-/glasafrjóvgun
Miscarriage – fósturlát
MRI – sjá Magnetic Resonance Imaging
Magnetic Resonance Imaging – segulsneiðmyndataka
Mucus – sjá cervical mucus
Myoma – vöðvaæxli
Myoma uteri – sléttvöðvahnútar (bandvefshnútar) í legi


N-P

Necrospermia - Það ástand þegar allar sæðisfrumur karlmannsins eru dauðar

O / Ov – sjá ovulation (stytting)
OATS - sjá Oligoasthenoteratozoospermia
OB – sjá Obstetrician
Obstetrician – fæðingalæknir
Obstetrician/Gynecologist – læknir sem sérhæfir sig í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp
OB/GYN – sjá Obstetrician/Gynecologist
OC
– Oral Contraceptives; (yfirleitt) pillan
Occlusion – lokun, stífla (t.d. í eggjaleiðurum)
OD – sjá Ovulatory Dysfunction
OHSS – sjá ovarian hyperstimulation syndrome
Oligoasthenoteratozoospermia - þegar í sæði karlmannsins eru óeðlilega fáar sæðisfrumur (minna en 20 millj. á ml.), þær eru með lélegan hreyfanleika (færri en 50% sýna einhverja virkni) og óeðlilega hátt hlutfall þeirra (meira en 70%) eru vanskapaðar.
Oligomenorrhoea - Það ástand að konan hefur óreglulegar blæðingar (svokallaðar fátíðir)
Oligospermia
– læknisfræðilega heitið á því þegar karlmaðurinn er með óeðlilega fáar sæðisfrumur í sæðinu, eða undir 20 milljónir í ml.
Oligozoospermia - sjá Oligospermia
OPK – sjá ovulation predictor kit
OPT – Ovulation Predictor Test, sjá ovulation predictor kit
Ovarian hyperstimulation syndrome – sjúkleg oförvun eggjastokka (í framhaldi af glasafrjóvgunarmeðferð
Ovarian hypofunction - það ástand þegar eggjastokkar konu eru með óeðlilega litla starfsemi. Orsakirnar geta verið erfðafræðilegar eða vegna vandamála í ónæmiskerfinu.
Ovary – eggjastokkur
Ovulate – hafa egglos
Ovulation – egglos
Ovulation predictor kit – egglosmælir
Ovulatory Dysfunction – þegar kona hefur ekki egglos
Ovum – eggfruma

P4 - Prógesterón
Partial Zona Dissection – frjóvgunaraðferð þar sem gerð er rifa eða skurður á ytra byrði eggfrumunnar þannig að sæði á auðveldara með að frjóvga eggið.
PCAO – sjá Polycystic Appearing Ovaries
PCO – sjá Polycystic Ovarian syndrome
PCOD – sjá Polycystic Ovary Disease
PCOS – sjá Polycystic Ovarian syndrome
PCT – sjá post coital test
pelvic inflammatory disease - Bólgusjúkdómar í grindarholi, sem orsakast af örverum (bakteríum) eða kynsjúkdómum og geta valdið ófrjósemi. Einkenni geta m.a. verið magaverkir, hiti og aukin útferð.
Pergotime - Lyf sem örvar starfsemi heiladinguls og eggjastokka og örvar egglos.
Percutaneous Epididymal Sperm Aspiration – þegar stungið er á eistnalyppu(r) í gegnum húð til að ná í sæðisfrumur
PESA
– sjá Percutaneous Epididymal Sperm Aspiration
Pg – stytting á pregnant, ófrísk
PI – sjá Primary Infertility
PID – sjá pelvic inflammatory desease
Pituitary gland – heiladingull
Placenta – legkaka
PMS – fyrirtíðaspenna
POF – sjá Premature Ovarian Failure
Premature Ovarian Failure – það ástand að kona sem er undir fertugu hættir á blæðingum, hefur óvenju lágt estrógen í líkamanum og hátt FSH gildi. Til að kona falli undir þessa skilgreiningu er yfirleitt miðað við að konan hafi ekki haft á klæðum í 4 mánuði samfleytt og tvær blóðprufur (teknar með a.m.k. mánaðar millibili) sem mæla FSH sýna FSH gildi yfir 40 mIU/ml.
Polycystic Appearing Ovaries – Eggjastokkar sem líta út fyrir að vera með blöðrum, sjá einnig PCOS
Polycystic Ovarian syndrome – blöðrur á eggjastokkum, valda truflun í hormónakerfi konu og skertri frjósemi
Polycystic Ovary Disease – blöðrur á eggjastokkum
Post coital test – próf sem gert er daginn eftir samfarir þar sem athugað er hvort sæðisfrumur karlmannsins sýna eðlileg lífsmörk inni í legholi konunnar
Pregnancy loss – fósturlát
Primary Infertility – ófrjósemi hjá pörum sem eiga ekkert barn fyrir
Profasi – Profasi er notað við ófrjósemi hjá konum. Notað í tæknifrjóvgun sem sk. miðnætursprauta sem veldur egglosi. Innihaldsefnið er HCG, þungunarhormónið og getur það valdið fölsku jákvæðu þungunarprófi í viku eftir að sprautan er gefin.
Prostate – blöðruhálskirtill
Puregon – Lyf sem notað er í glasafrjóvgun/tæknisæðingu til að örva vöxt eggbúa konunnar. Puregon inniheldur FSH sem örvar vöxt eggbúa.
Pyospermia - sjá leucospermia
PZD – sjá Partial Zona Dissection


R-T

RE – sjá reproductive enchrinologist
Reproduction – fjölgun
Reproductive enchrinologist – læknir sem sérhæfir sig í meðferð við ófrjósemi
RI – sjá Reproductive Immunologist
Reproductive Immunologist – sérfræðingur í ónæmissjúkdómum í æxlunarfærum
RPL – sjá Recurrent Pregnancy Loss
Recurrent Pregnancy Loss – endurtekin fósturlát
Rubella – rauðir hundar

s/b, S/B – Stillbirth, andvana fæðing
SA (eða S/A) – sjá sperm analysis
Secondary infertility – ófrjósemi hjá þeim sem eiga barn/börn fyrir
Sexually transmitted desease – kynsjúkdómur
SHG, SonoHSG – sjá Sonohysterogram
SI – sjá Secondary Infertility
Sonohysterogram – ómmynd af legi
Sonogram - ómmynd
SPA – sjá Sperm Penetration Assay
Sperm Penetration Assay – sæðispróf sem gengur út á að meta raunverulega frjóvgunarhæfni sæðisins og þar með möguleikana sem parið hefur til að ná árangri í tæknifrjóvgunarmeðferðum
Sperm - sæði
sperm analysis – sæðispróf þar sem metinn er fjöldi sæðisfruma, hreyfanleiki, lögun og fleiri þættir.
sperm morphology – fjöldi sæðisfrumna
Sperm motility – hreyfanleiki sæðis
Spermatogenesis – sæðismyndun
STD – sjá sexually transmitted desease
Stein-Leventhal syndrome – sjá Polycystic Ovarian Syndrome
SUZI – Sub-zonal Insemination - frjóvgunaraðferð þar sem sæðinu er sprautað inn á milli ytra byrðis og innra byrðis eggfrumunnar eftir að ytra byrðið hefur verið opnað.

T4 – Thyroxine, skjaldkirtilshormón
TESA – sjá Testicular Sperm Aspiration
sjá Testicular Sperm Aspiration – aðgerð þar sem stungið er á eista karlmanns til að ná í sæðisfrumur fyrir tæknifrjóvgun (t.d. gert ef sáðrásir hans eru stíflaðar)
teratospermia - þegar meira en 70% sæðisfrumna karlmannsins eru vanskapaðar
Teratozoospermia - sjá teratospermia
Testicles – eistu
Testis atrophy – sjúkdómur þar sem eistu karlmannsins eru rýrari en eðlilegt getur talist
Thyroid Stimulating Hormone – stýrihormón sem heiladingullinn seytir og sendir boð til skjaldkirtilsins um að framleiða thyroxín, eitt af hormónum líkamans sem hefur m.a. áhrif á efnaskiptin.
TL
– sjá Tubal Ligation
Tubal Ligation – aðgerð þar sem reynt er að tengja eggjaleiðara konu sem hefur áður farið í ófrjósemisaðgerð
TR – sjá Tubal Reversal
TRH – Thyroid Releasing Hormone, stýrihormón sem undirstúka heilans seytir og hvetur heiladingulinn til að framleiða TSH, (sjá Thyroid Stimulating Hormone)
Trying to conceive – reyna að geta barn
TSH – sjá Thyroid Stimulating Hormone
TTC – sjá trying to conceive
Tubal reversal – aðgerð sem snýst um að laga eggjaleiðara konu sem hefur farið í ófrjósemisaðgerð og látið þar með binda fyrir þá
Turner's Syndrome – erfðasjúkdómur sem lýsir sér m.a. í því að konur sem eru haldnar honum framleiða engar eggfrumur. Ástæðan er sú að konur með Turner’s eru annað hvort bara með einn X kynlitning í stað tveggja eða þá annar X litningurinn er gallaður á einhvern hátt. Þetta þýðir að eggjastokkar konunnar þroskast ekki eðlilega og starfa ekki eðlilega þannig að konur með Turner’s þurfa hormónameðferð til að koma af stað kynþroskanum. Aðeins örfáar konur með Turner’s geta eignast eigin börn.
Tx – Treatment, (ófrjósemis) meðferð


U-Z

U/s - sjá ultrasound
Ultrasound – sónarskoðun
Urethra - þvagrás
Uterine fibroid – sléttvöðvahnútar (bandvefshnútar) í legi
Uterine lining – legslímhúð
Uterus – leg
UTI – sjá Urinary Tract Infection
Urinary Tract Infection – þvagfærasýking

V – sjá Vasectomy
Vaginitis – slíðurbólga í legi
Vas Deferens - sáðrás
Vasectomy – sáðrásarúrnám, ófrjósemisaðgerð á körlum, þegar klippt er og bundið fyrir sáðrásir karlmanna
Vasectomy Reversal – þegar reynt er að lagfæra sáðrásir karlmanna sem hafa farið í ófrjósemisaðgerð
VR – sjá Vasectomy Reversal
Vulva – kvensköp

y deletion – genagalli

ZIFT - Zygote Intra-Fallopian Transfer
Zygote – okfruma; frjóvgað egg sem ekki er byrjað að skipta sér
Zygote Intra-Fallopian Transfer – Glasafrjóvgun þar sem okfruma er sett inn í eggjaleiðarana.


tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin